Gamlar hrútaskýringar

Nú er sú öld upp runnin að það eru ragnarökkvaðir karlskrjóðar sem boða dómsdagstíðindi á bloggsíðum. En fasískar femínista fraukur ríða röftum rétttrúnaðarins, dragandi stríðsvagninn, -öðruvísi mér áður brá á tímum Völu.

Vafrandi um á vegum illskunnar hafa stjórnvöld þegið mútur, beitt málfrelsið fjárkúgun og dælt úr sprautum lyfjaiðnaðarins honum til hagsældar. Þetta hefur verið uppi á teningunum  undanfarið, -kastað fram af Davos dúkkulísum.

Í þakklæti fyrir hlýðnina fær nú heimsþorpið að stróka með himinskautum á flækingi sínum með kolefnisbremsufarið rafrænt í rassgatinu. Karlmennskan er komin í fæðingaorlof og bleyjuskipti samkvæmt snjallúrinu. Á meðan skara dyggar dróttir eldi að eigin höfði á fjarfundi í snjallsímanum sínum, eftir að þær komust í kúlu gullsins á Gimlé, -já og vel á minnst eourovision orðin eins og hver önnur uppvakningarsamkoma djöfladýrkenda.

Ef leikarinn Seleninskí væri ekki nú leiddur fram á sviðið til slátrunar, væri ímynd vestrænnar karlmennsku nú þegar liðið lík. Hán hefði verið hengt upp kynsegin efst í regnbogann. Við erum stödd í leikritinu þar sem málaliðar Valahallar berjast fyrir Bæden klanið og Pútín básúnar Wagner. Og verðbólgan æðir um Hveradali og hnjúka, -þrjár máltíðir frá hungursneið í öllum hagvextinum.

Þegar leikritinu lýkur liggur tálsýnin ein eftir, þyngri en tárum taki með tærnar upp í loft á Tene. Þak, klæði eða fæði verður það sem valið stendur um, -að því að virðist takmarkað  framboð við að fullnægja óendanlegri fíkn. Tvennt af þrennu þarf samt ekki að vera svo slæmt, -verði það svo gott?

Hrun siðmenningar og frumskógarlögmálið eitt virðist framundan. Ef fólk hefur ekki lengur aðgang að fæði, klæði og húsaskjóli, verður offramboð af ofbeldi og ótta í veröld sem hefur verið fokkað upp á flótta, -og þá dreymir Bjössum og Willisum landsins bláa helst um að kosta íslenskan her.

Hringrás dómsdagsklukkunnar hefur nýlega lokið árinu mikla, tuttugu og sex þúsund ára hring 21. des 2012, -samkvæmt tímatali Majanna. Nú er sá tími þegar jörðin er í fullkomnu samræmi við sólina. Hindúar skiptu árinu mikla í fjórar lotur. Grikkir í fjórar aldir; járn, brons, silfur og gull, -og Vala sagði sögur af Ásum.

Þessi speki gengur út á tuttugu og sex þúsund ára hringrás himingeimsins rangsælis í kringum sólina, aftur að nýju upphafi. Jörðin gengur sinn vana sólarhring og hallar árlega um ás sinn, árstíða hallinn veltir jafndægrum og sólstöðum. Svo tekur tvö þúsund og eitthundrað ár fyrir jörðina að ferðast í gegnum hverja af tólf öldum stjörnumerkjanna.

Tólf sinnum tvö þúsund og eitthundrað eru u.þ.b. tuttugu og sex þúsund ár. Alheimurinn er nú eftir 26.000 ár á ný að sigla inn í merki Vatnsberans, hefur yfirgefið merki Fiskana, - öld Jesus Christ Superstar. Kærleikurinn er í lausu lofti, rétt eins og blóðhefndin var þegar siglt var úr merki Hrútsins yfir í Fiskana. En kærleikurinn þarf þess vegna ekki að vera á hverfanda hveli frekar en má greina blóðhefndina í órafjarlægð stjörnuhiminsins.

Með breytingum á stöðu, segulsviði og tíðni sólkerfisins, breytist veruleikinn, ný hugmyndafræði með nýrri heimsmynd fæðist. Þegar ný öld tekur völd ríkir glundroði og margir vilja komast í gullið á Gmilé. Verum því sterk á hringrás eilífðarinnar, og munum; -Guðs ríki er innra með yður.

Púkar Sæmundar munu um stund eiga sviðið trommandi á fjósbitunum í dúkkulísu drögtum, sem meira en aldrei fyrr vilja veröldina í þriðju heimstyrjöldina, sér til dýrðar undir regnboganum, -alda fornum sáttmála Guðs og Nóa vegna syndaflóðsins. 

í þeirri styrjöld munu allir tapa aðrir en sálarlausir auðrónar, sem fá fullnægingu af því einu að fróa sér í sínu rafræna bókhaldi, rétt á meðan þeir ljúka sinni línulegu ævi.

Skildu allir flissandi fábjánarnir í Davos dúkkulísu drögtunum átta sig á þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Frábærlega skrifuð grein og orðalagið alveg meiriháttar.  Alltaf tekst þér að koma hlutunum vel frá þér og vekja menn til umhugsunar.....

Jóhann Elíasson, 8.3.2023 kl. 10:56

2 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Með þeim betri sem ég hef lesið í langan tíma.

Og ekki bara það. Heldur meira og minna sannur.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.3.2023 kl. 12:33

3 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka ykkur fyrir innlitið og athugasemdirnar félagar.

Í dag er alþjóða baráttu dagur kvenna samkvæmt UNESCO ritúalinu.

Ég setti þetta nú bara inn til að minnast húsmóðurinnar, þeirrar fórnfúsu manneskju sem ól okkur gömlu mennina upp, áður en ríkið tók það að sér samkvæmt alþjóðlegum staðli.

Síðan þá hefur rítalín og ólæsi orðið okkar hlutskipti.

Magnús Sigurðsson, 8.3.2023 kl. 13:08

4 Smámynd: Haukur Árnason

Takk fyrir þennan pistil Magnús, Hann er predikun dagsins. Stólræða. Dáist að hvað þú hefur gott orðaval og viðeigandi.

Prestar lesa pistil dagsins og leggja svo útaf honum. Með mismikilli andagift. Ég velti vöngum yfir hver var kveikjan að þessum pistli hjá þér. (það var áður en þú úrskýrðir það í kommentinu) Fannst líklegast að þú hefðir einhvern tíman lesið hugleiðingar Ísleifs Gíslasonar um gamalt handrit af Krukkspá. Nú man ég ekki nema brot úr því, þarf að finna það, á það í Skagfirskum ljóðum, hvar sem þau nú eru

Eitt erindið passar við Davos dúkkulísurnar.

Álpast úrkynja
Evu dætur
á tízkutréfótum
tildurmennsku
út á öræfi
auðnuþrota
og heilsutjóns
Hjálpleysu.

Þetta erindi getur nú átt við flesta stjórnmála og embættismenn, því miður.

Skálma um stræti
í skrautútgáfu
landeyður, flón
og líðskrumarar
veifandi andlegum
axarsköftum,
þeim er óheilla
örlög skapa.

Þarf að finna bókina og rifja þetta upp. Þar var lika eitthvað um trúmála tundurdufl og hugsanagraut og heilabrot.

Kveðja frá Selfossi.

Haukur Árnason, 8.3.2023 kl. 21:54

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þakka þér fyrir athugasemdina Haukur, -og þessi kynngimögnuðu ljóð.

Það er ekki gott að segja hvort kemur á undan hænan eða eggið, en einhvernvegin var það svo að það þvældust á milli eyrnanna orð sem ég fann ekki stað en setti á blað.

Svo þegar Matthildur mín hafði rifið af dagatalinu í gær þá blasti við að þessi UN dagur og ég lét vaða. En nú ertu búin að gera mig forvitinn um hvað stendur í Krukkspá.

Með kveðju af Héraði.

Magnús Sigurðsson, 9.3.2023 kl. 06:08

6 Smámynd: FORNLEIFUR

Konur nenna ekki að lesa þessa skemmtilegu S-eyju og hún er engin steypa. Ég verð að taka hattinn af ferir eður.

FORNLEIFUR, 9.3.2023 kl. 10:08

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þó það nú væri Fornleifur.

Magnús Sigurðsson, 9.3.2023 kl. 12:50

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er nú það Magnús, hér að ofan í athugasemdum er margt sagt sem segir svo margt um þessa eldræðu þína.

Svo fáu er við að bæta, en má vitna í.

"Hrun siðmenningar og frumskógarlögmálið eitt virðist framundan. Ef fólk hefur ekki lengur aðgang að fæði, klæði og húsaskjóli, verður offramboð af ofbeldi og ótta í veröld sem hefur verið fokkað upp á flótta, -og þá dreymir Bjössum og Willisum landsins bláa helst um að kosta íslenskan her.".

Það er nú svo, en ég hef heyrt að forn minni höfðu hermt að ekki væru bækur spámanna Gamla testamennisins fullskrifaðar.

Það er að ekki hafi allt verið skrifað þegar þeirri bók var síðast ritstýrt.

En samt svona smá leiðrétting, það að leikarinn við Svartahaf hafi sameinað þjóð sína gegn ásælni hins sterka sem líður ekki hið smáa, þá var það vissulega bakslag fyrir Hán og allt kynsegið. En það endurreisti raunveruleikann, ekki beint femínistum eða karlkellingum í vil.

En þetta er samt aukaatriði málsins.

Kveðja úr neðra, úr sólinni og birtunni.

Ómar Geirsson, 17.3.2023 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband