Sama árferðið - sitt hvor aðferðafræðin

Árið 1966 ákvað ríkisstjórn Íslands að sporna gegn verðbólgu með því að lækka vöruverð, þetta var m.a. gert með með lækkun mjólkur og annarra innlendra nauðsynjavara. Um þetta mátti lesa í pólitískum fjölmiðlum þess tíma og þótti þetta arfavitlaust af mörgum, -en virkaði.

Í aðdraganda aðgerðanna mátti í Degi lesa þetta: -Ríkisstjórnin hefur ákveðið að greiða niður verðlækkun þá, sem um samdist fyrir skömmu við verðlagningu búvara. — Stjórnarblöðin raupa af þessu og segja, að ríkisstjórnin hafi nú stigið fyrsta skrefið til að stöðva verðbólguna. Á öðrum stað segir, að nú geti stjórnar andstæðingar verið ánægðir, því að þetta hafi þeir heimtað.

Í dagbók afa míns, var þetta skráð þann 23.10.1966  -Messað í Vallaneskirkju prestur var séra Ágúst Sigurðsson, 36 manns voru við messuna. Víkingur í Skógargerði kom og sótti 6 ær sem hann átti hér. Í dag lækkaði mjólkin um 1,35 kr, mjólk í lausu máli er 5,95 kr, var áður 7,30 kr. Egg eru seld á 90,00 kg, kartöflur á 18,00 kr hvert kg, rófur á 16,00 hvert kg.

Ég sæi þetta gerast nú á dögum þegar allt gengur út á hækkanir verðbólgu púkum hagvaxtarins til yndisauka.


mbl.is Mjólkin hækkar líka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á Spáni hefur verðbólgan hjaðnað hratt

með því að lækka álögur á bensín, dísil

og aðrar helstu nauðsynjar almennings.

Sýnir svo ekki verður um villst

að það virkar að lækka álögur ríkisins.

Þessi einföldu sannandi skilja hvorki

fjármála- og seðlabanka viðundrin hér á landi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 4.4.2023 kl. 20:35

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Satt er það Símon Pétur svona einföld sannindi skilja ekki viðundur sem ganga fyrir vístöluhækkunum, -þau kynda undir verðbólgunni með vaxta- og skatthækkunum.

Magnús Sigurðsson, 4.4.2023 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband