8.6.2023 | 16:12
Landráðaliðið
Landsmenn fljóta nú að feigðarósi með augun, vatnsblá glær og galtóm límd við snjall skjáinn. Sjónlausir á það hvað missir fullveldis kostaði í 7-800 ár með öllum sínum hörmungum. Gullaldir þessarar þjóðar hafa verið tvær í þessu landi og báðar með fullveldi.
Og nú er svo komið að fjárplógsfólk ræður allri umræðu og er langt komið með að skipta um þjóð í landinu. Mikið af nýju þjóðinni þekkir ekkert annað en júníonið og svo að búa við velmegnum á Íslandi, en það tvennt á enga samleið eins og sagan sannar.
Þetta vita þeir sem aldir eru upp á Íslandssögunni og eru færir um að halda henni til haga, en ekki bara því sem við blasir hverju sinni á skjánum. Erlend öfl hafa aldrei náð völdum á Íslandi öðruvísi en með landráðum innanlands.
Stjórnvöld sem byggja allt sitt á fölskum forsendum, lygum og blekkingum, eru verri en engin. En alltaf virðist vera hægt að sannfæra almenning um að á því sé eitthvað að græða.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.6.2023 | 13:14
Öfugmæli - eða hvað?
Það á skilyrðislaust að setja þak á verðtryggingu lána þegar verðbólgan fer langt yfir verðbólgumarkmið stjórnvalda.
Ef verðtrygging á einhvertíma rétt á sér, þá er það til að verðtryggja launatekjur almennings á meðan verðbólguskot gengur yfir, ef það væri gert hyrfi verðbólgan á stuttum tíma.
Bankar og auðrónar yrðu að minka hagnað og arðgreiðslur þar til verðbólgan gengi niður og það opinbera halda aftur af sjálfvirkri sjálftöku.
Ekkert af þessu hefur verið upp á borðum. Kjarasamningar launfólks setja engar skorður við sjálfvirkar hækkanir, sem taka mið af óðaverðbólgu keyrðri áfram m.a. af vísistölu ofurvaxtaðs húsnæðisliðs.
Auðrónar, bankar, ríki og sveitafélög hafa engan hvata til að koma móts við það fólk í landinu sem dregur vagninn, -eins og staðan er í dag. Stunda því sjálftöku og græða eftir sem áður þrátt fyrir verðbólguna - og kalla það þá hagvöxt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
6.6.2023 | 05:34
Nýja þjóðin, unga fólkið og græðgin
Þegar við, sem fengum þetta land í arf, virðumst ætla að láta glóbalska auðróna hafa það af okkur átölulaust, og höldum að það sé sjálfsagt gæskunnar vegna að þegja.
Er rétt að minnast á það hvað íslenskir auðrónar ganga langt í að skipta um þjóð í landinu við að afla sér ódýrara vinnuafls bæði til að hirða mismun, -og síðar ef vinnuaflið sest að, -snuða það í gegnum þakið yfir höfuðið.
þar sem skipulega er verið að gera út á Ísland sem eitt dýrasta land í heimi með því að flytja inn fólk og hirða mismun af okri og lágum tilkostnaði í launum.
Rétt eins og unga fólkið okkar þá hafa nýbúar ekki hugmyndaflug til að átta sig á hverskonar græðgi býr að baki t.d. í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Hvað þá að viðbættri fádæma illskunni þegar kemur að þakinu yfir höfuðið, -sú er slík að vandfundin er í hinum siðmenntaða heimi.
Við þetta bætist svo flóttamannaiðnaður góða fólksins og stjórnvalda, sem hefur orðið til þess að ný met eru slegin hvert af öðru í aðflutningi erlends umkomulauss fólks til landsins, ár eftir ár, -auk allra túristanna.
Snjalla fólkið hefur síðan sankað að sér -nokkurskonar ávöxtunar sparibaukum í verðbólgunni- mun fleiri íbúðum en það kemst nokkurn tíma yfir að búa í yfir alla ævina, -til að leigja út á okurverði.
Í vetur bárust svo fádæma fréttir af því þegar ríkisstofnun yfirbauð leigu fyrir hönd ríkisins þar sem landar okkar með lítið á milli handanna hafa undanfarin ár fengið húsaskjól á viðráðanlegu verði.
Hvað langt munu íslensk stjórnvöld vera tilbúin til að ganga með auðrónum, stríðsherrum og glóbalistum í svokallaðri góðmennsku sinni? -og hvað ætlum við að láta þetta lið teyma okkur langt?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.6.2023 | 05:34
Gervigreind - flokkað sorp
Það er búið að að fábjánavæða glóbalinn með trú á ritrýnda tölfræði fengna úr spálíkönum smart dýrkun og að flokka sorp ofan í sömu sömu holu.
Þegar sýndarveruleikinn og gervigreindin bætist svo ofaná allt saman frá þeim sem hæðst gala, -er ekki von á góðu.
Þar sem lífsreynsla skilningur og raunveruleg kunnátta í lífsins gildum eru látin sigla sinn sjó, -nálgumst við veruleika þar sem hver verður sjálfum sér næstur.
Það kann aldrei góðri lukku að stýra þegar fólk kaupir óskapnaðinn með þögninni, -kyngjandi honum með kolefnisjafningi og carbfix, -sættandi sig við snuðið.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.6.2023 | 07:16
Klakinn
það er ekkert nýtt undir sólinni hvað vextina varðar og það þarf ekki að efast um að aðferðafræði Seðlabankans gefur sömu niðurstöðu og síðast, -og þar áður. Niðurstaðan er hvorki heimska né mistök í efnahagstjórn, heldur hrein græðgi og illska.
Hvorki er hægt að ætla ungu fólki né erlendu, að gera sér grein fyrir þeirri illsku sem liggur að baki þeirra klækjabragða sem síendurtekin eru við að gera heimili fólks að féþúfu, -og fara síversnandi. Eini möguleiki margra er að hrekjast í verðtygginguna, -eða þá á götuna.
Og ekki má gleyma því að Seðlabankinn var skilvirkasta peningaþvottastöð veraldar á síðasta áratug, og núverandi seðlabankastjóri var efnahagsráðgjafi gamma, þeirra sem hefur verið farið með eins og mannsmorð á hvað fengu íbúðasafn opinberra sjóða, -eignir hirtar af fólki í hinu svokallaða hruni.
Aflands ránsfengurinn, eftir að bankar voru tæmdir innanfrá, var síðan fluttur til landsins bláa á yfirgengi í gegnum fjárfestingaleið Seðlabanka Íslands og notaður til að kaupa upp eignir m.a. þær sem fjölskyldur höfðu misst, -engin fær að vita á hvað.
Svo var blásið til fasteignaverðbólu, -og nú eiga þeir, sem keyptu sitt fyrsta þak yfir höfuðið á háa verðinu, að blæða í eitt skiptið enn. Þetta er ekki efnahagstjórn fyrir fimm aura, þetta kallast á mannamáli græðgi og illska.
Guð blessi Ísland.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.5.2023 | 05:49
Hleinarnar neðan við kot
Nú væru dagarnir ljúfir hérna fyrir austan mána í sunnan sól ef ekki væri fyrir steypuna og stautið, -ekki einu sinni Tene gæti freistað.
Ég hef stundum sagt frá því hérna á síðunni hvernig ég legg á flótta undan veruleikanum með henni Matthildi minni þegar við förum í gamla gula bárujárnshjallinn úti við ysta haf.
Útidyrnar þar eru þrem skrefum frá þjóðvegi eitt, þar sem tímatrektir túristarnir strauja niður farfuglana á hraðferð sinni um landið, -sex skref í viðbót - í gegnum húsið, út um garðdyrnar, -og komið er í paradís.
Þar syngur þrösturinn, -og máríerlan ber flugurnar í tuga tali heim í hreiðrið sitt úr grýttu fjörunni sem úthafsaldan gjálfrar við undir klappar bakkanum.
Æðakollurnar dugga svo úandi við hleinarnar neðan við kot og stöku sinnum má sjá hnísur fara með þýðum sporðaköstum og blæstri fyrir tangann þar sem krían skellir sér í sjóinn úti fyrir með hvellu kneggi sínu í leit að æti.
Á þessum hleinum á skarfurinn sinn sess á öðrum árstímum við að þerra vængina í hafgolunni, en um varptímann hef ég heyrt að hann haldi sig við Breiðafjörðinn. Veiðibjallan á því það til að tylla sér þar þessa dagana við litlar vinsældir.
En núna um helgina var nýr gestur mættur, -himbrimi, sem ég hef ekki séð svamla við hleinarnar fyrr. Hann kafaði í gríð og erg, kom svo upp með hvert sílið af öðru og á endanum þyrskling sem hann átti í mesta basli með sporðrenna eftir að hafa kokgleypt.
Að verða vitni að andardrætti náttúrunnar milli flóðs og fjöru við þennan stóra spegil hafsins er sennilega sömu andagiftar virði og upplifa almættið.
Almættið og náttúran sér um sína og gefur öllu sem lifir nóg að bíta og brenna, en græðgi mannanna mun hún samt ekki metta því hún fær aldrei nóg. Nú eru áform uppi að setja niður laxeldi í endilangan Stöðvarfjörðinn eins og hvern annan Austfjörð.
Ég hafði á orði við Búdda bróðir um daginn að réttast væri að friða allt Ísland fyrir ferðamönnum og fiskeldi sem Galápagos norðursins. Hann sagði; ræddu þetta við Attenborough það er aldrei að vita nema að hann myndi stróka norður á einkaþotunni sinni til að taka einn hring yfir herlegheitin.
Þarna í paradísinni sitjum við Matthildur mín tímunum saman úti á palli, sambandslaus við umheiminn, blíðum í blænum við öldunnar vaggandi nið á meðan þrösturinn syngur fyrir okkur hástöfum og fylgjumst með því sem fyrir augu ber við hleinarnar neðan við kot, á meðan túristavaðallinn flæðir fram og til baka ofan við hús um þjóðveg eitt, -hún prjónandi, á meðan ég spái í steypu.
Dægurmál | Breytt 6.6.2023 kl. 21:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
27.5.2023 | 10:00
Ódáinsakur á hvítasunnu
Núna í vikunni birti Guðjón Hreinberg pistil sem hann kallaði Af norninni Gullveigu, og lét þess getið innan sviga að hann væri eingöngu ætlað Fjölæringum og Aldingjum. Gullveig er ein af nornum Völuspár og sagði Guðjón hana líka grámunni , , ,sem virkar að sumu leiti þannig að þegar þú ert framliðinn en þorir ekki yfir eða villist, þá getur þú eigrað um hérnamegin en þú sérð allt í gráma og þú sérð ekki venjulegt fólk, utan suma þeirra sem eru ófreskir, að þú ýmist sérð þá berum augum eða eins og þokukenndar verur er bregður fyrir.
Þar sem pistill Guðjóns var langur, margslunginn og torræður þá setti ég inn athugasemd það fyrsta sem mér datt í hug við lesturinn til að fiska eftir því hvað hann meinti, eins til að sýnast gáfaður Fjölæringur eða Aldingi, -og skrifaði; þokukenndur ertu Guðjón, -í grámósku dagsins, en mér sýnist þú samt vera staddur á ódáinsakri. Síðan sendi ég honum tengil og nokkrar ljóðlínur úr Skíðarímu og þakkaði honum fyrir uppljómun dagsins.
Ódáinsakur er torræður og ekki gott að átta sig á hvað orðið merkir annað en eilífðarakur, hvað þá að nokkur viti nákvæmlega hvar sá akur er staðsettur. Ég fór því að grúska í hvar helst væri að finna ódáinsakur en ekki eru til magar skilgreiningar á fyrirbærinu nema þá í ævintýri eða ljóði. Í Eiríkssögu víðförla er talað um ódáinsakur og fann ég hana á netinu á gamalli norsku og þar kemur þetta fram um ódáinsakur þegar Eiríkur leitaði upplýsinga norræns konungs um það hvernig heimurinn væri byggður og þar koma þetta m.a. fram.
Eiríkur mælti; -hvar er sá akur er Ódáinsakur heitir. Konungur svarar; -Paradís köllum vér hann eða jörð lifenda. Eiríkur spyr; -en hvar er sá staður. Konungur segir; -í austur frá Indíalandi hinu ysta. Eiríkur mælti; -er hægt að komast þangað. Víst er það; -segir konungur, -allavega fyrir þá er sem öruggir eru með að komast til himna.
Þegar þetta og margt fleira hafði konungur sagt honum, lét Eiríkur sig falla til fóta konungi og mælti; -ég bið þig þess innilega að með fulltingi yðar greiðist ferð mín. Því mér er sú skylda á höndum að efna heitstrengingu mína, þá sem ég strengdi um að fara suður í heim að leita Ódáinsakurs. Konungur sagði Eiríki að til þess þyrfti hann og menn hans að fara að hans ráðum í einu og öllu og láta skírast.
Einn staður á Íslandi er þó sagður hafa heitið Ódáinsakur. Það er í Hvanndölum, en þar segja munnmælin að flytja hafi þurft bæinn vestur fyrir Hvanndalaána vegna þess að á meðan hann var fyrir austan hana hafi engin þar getað dáið, og hafi þurft að flytja fólk vestur fyrir á til að þess að sálast. Eftir það hafi gamla bæjarstæðið fyrir austan á verið kallað Ódáinsakur og síðar bara Akur.
Hvanndalir eru á milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar þykja nú óbyggilegir, enda er einungis fært þangað af sjó. Samt var búið í Hvanndölum fram eftir öldum, en byggð lagðist þar af eftir að Hvanneyrarhreppur í Siglufirði keypti jörðina í þeim eina tilgangi að afleggja búsetu þar endanlega.
Hvanndalabræður eru einir af merkilegustu vísindamönnum Íslandssögunnar. Ef ekki væri fyrir þeirra svaðilför þá væru upplýsingar um Kolbeinsey, ysta grunnpunkt landhelginnar í norðri, harla fátæklegar. Hetjudáð Hvanndalabræðra var gerð skil hér á síðunni í pistli fyrir rúmu ári síðan.
Það hefur vakið furðu, að í Landnámu er sagt að deilur um Hvanndali hafi kostað 16 menn lífið. Þar deildu landnámsmennirnir Ólafur bekkur úr Bjarkey í Hálogalandi landnámsmaður í Ólafsfirði og Þormóður rammi landnámsmaður Siglufjarðar er bjó á Siglunesi um Hvanndali, og varð sextán manna bani, áður þeir sættust, en þá skyldi sitt sumar hvor hafa. Þessi verðmæti Hvanndala þurfa ekki að koma á óvart á víkingaöld þegar gulls í gildi var að komast viðstöðulaust í góðan byr.
Til að gera langa sögu stutta þá svaraði Guðjón mér eftir að ég hafði plægt Ódáinsakur í netheimum með þessum orðum: Ef þú gengur upp hálsinn ofan við Seltún í Krísuvík, kemurðu í lítinn dal með tjörn. Þar eru tveir vættir dáinn og ódáinn. Þess virði að ganga þar um og þannig vita af þeim af eigin reynslu. Það sést greinilega á dalverpinu hver er hvorumegin. Eins og margir vita er Krísuvík (eða Krýsuvík) (stórsvæðið) eins og málverk reginna, eins og allar dulsögur "vors siðar" lifna þar við. Guðjón E. Hreinberg, 24.5.2023 kl. 21:12
Ég heyrði frá Ódáinsakri
óma í þögulli nótt.
Ég hafði setið og sungið fátt,
í sál mér var orðið hljótt.
Að augum mér viku þær vordagasýnir,
er vetur að síðustu máir og týnir.
Öll sumarsins óræktu áform
og ósungnu fagnaðarljóð
að hug mínum hljóðlát sóttu
og hurfu sem andvana jóð.
Mig dreymdi yfir dánum vonum
og djúpri þögulli sorg,
er streymdi til mín úr allri átt
frá órótt sofandi borg.
Þrá mína ég svæft hafði á sorgararmi,
minn sársauka leyst upp í tár á hvarmi.
Ég hafði setið og sungið fátt,
í sál mér var orðið hljótt.
Þá heyrði ég frá Ódáinsakri
óma í þögulli nótt. ---(Sigurjón Friðjónsson)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.5.2023 | 06:15
Beðið eftir fíflunum
Það er kominn miður maí og ég les enn þungbrýnd skammdegis ljóð. Steypa síðustu daga segir til sín í morgunnsárið, brjóstverkur, bjúgur og svefnleysi. Síðuhafi fór af stað með þau frómu áform að blogga um eitthvað lítilræði daglega fyrir tveim vikum síðan, bara einhverjar litlar áminningar svona svipað og dagbók. Þetta fór í vaskinn eftir fjóra daga og endaði í tómri steypu á stangli þar sem góð áform voru hræð saman við langlokur og skæting.
Þriðja daginn í steypu, þegar við félagarnir stóðum á sliskju utan á svölum skammt fá grafarbakkanum bíðandi eftir steypusílói og ég rífandi kjaft á tærri íslensku, horfði Dan -rúmenskur vinnufélagi íbygginn á mig og sagði á lýtalausri ensku; -nú er ég búin að fatta hvað þú ætlar þér Maggi, þú ætlar að láta Trausta taka við keflinu svo þú getir hætt.
Trausti er tvítugur gullmoli í steypaunni, Dan er 36 ára málaliði sem dregur vagninn í byggingariðnaði á Íslandi. Vinnufélagahópurinn samanstendur, sem betur fer af vöskum ungum mönnum víða að, þó svo eitt og eitt gamalmenni þvælist innan um, og er heiður fyrir gamlan jálk að fá að starfa með ungum og frískum mönnum, þó heilsan leyfi varla hálfan dag.
Matthildur mín spurði mig svo fyrir nokkrum dögum hvort ekki væri rétt að kíkja á starfslokanámskeiði, fólk gerði það stundum á okkar aldri og það væri einmitt verið að auglýsa eitt í Dagskránni. Ég sagðist ekki gera neitt í því, enda ekki nema rétt að verða 63. ára, en hún gæti gert það sem henni sýndist. Matthildur mín hafði svo sitt fram, og eftir steypu gærdagsins fórum við á þetta fjandans námskeið.
Á þessum árstíma er ég vanalega farin að tína fífla, njóla, hundasúrur og hvönn til að halda heilsunni. Fíflar eru t.d. vatnslosandi og vinna vel á bjúg, njólann nota ég í súpu, hundasúrurnar í salat og hvönnin gefur kraft. Þetta fóður hefur endurnýjað heilsuna að vorlagi undanfarin ár, en ég er með skaddað hjarta, þess vegna orkulaus. Bjúgur og brjóstvekur er því fljótur að láta á sér kræla við áreynslu þrátt fyrir viðvarandi sprengitöfluát.
Það má segja að undanfarna daga hafi allt gengið meira og minna úr skorðu, steypurnar verið fleiri og erfiðari en ég bjóst við, bloggin andlausari og Matthildur mín hætt að hafa trú á mér og ég beðið of lengi eftir fíflunum sem eru reyndar fyrir nokkrum dögum orðnir ætir. Vonandi hef ég mig í það í dag, -uppstigningardag, að verða mér út um andlegt heilsufóður við niðinn í Eyvindaránni
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
16.5.2023 | 16:23
Merci Bocú von der Leyen
Þá er stærsta hagsmunamál Íslendinga síðan EES samningurinn tók gildi komið í höfn og ekkert að vanbúnaði að samþykkja bókun 35 á alþingi. Landinn getur glaðst yfir að fá að fara til Tene án verulega íþyngjandi kolefnisskatta til ESB, en situr í þess stað uppi með flækinga og túristavaðalinn rammflæktan í innviðunum.
Gamla fraukan tók öllum dúkkulísum fram með því að taka af skarið, eftir að landinn hefur hreinlega beðið á milli vonar og ótta um að þetta mál færi á hinn skelfilegasta veg. Að sitja uppi með landráð og flissandi fábjána án þess að eiga raunhæfa möguleika að geta hvílt kvarnirnar við öldugjálfur á suðrænni strönd er hreint ekkert grín.
Já og merci bocú mbl fyrir að vera fyrst með fréttina.
![]() |
Von der Leyen: Ísland fær undanþágur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
12.5.2023 | 19:44
Elíta íslensks fáránleika
Er þegar saman kemur góða fólkið og stjórnmálamenn, sem hafa setið við kjörkatlana árum jafnvel áratugum saman. Flissa í stutta stund með forsætisráðherra yfir háleitum markmiðum um útrýmingu fátæktar íslenskra barna, sem hefur einungis aukist á þeirra vakt, auk þess sem þeim fer fækkandi.
En það breytir því ekki að við erum ennþá með of margar hindranir. Það eru þættir sem við getum gert betur og hér var sérstaklega rætt um húsnæðismálin. Ég held að það blasi við að þó að stjórnvöld hafi verið að beita sér á húsnæðismarkaði á undanförnum árum hefur enn ekki verið byggt nóg til þess að standa undir þörfinni, -segir sú sem flissar best.
Sennilega verður niðurstaðan af skrautsýningunni sú að bjóða heimilum ungs fólks 110% leiðina aftur, og þeim sem hafa enn kjark til að eignast börn. Skrúfa síðan áfram upp vextina auðrónum til arðs, sem hækka síðan fasteignaverðið upp úr skýjunum með tíð og tíma, svo hægt verði að gjaldfæra sjálfvirkt fyrir allri sjálftöku elítunnar.
![]() |
Vilja útrýma fátækt barna fyrir 2030 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 13.5.2023 kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)